Fiore brjóstahaldarinn er snilld fyrir þær sem vilja taka brjóstin vel frá hliðum, fá góða lyftingu stuðning milli brjósta EN ekki alveg lokaða skál. Saumlaust micro-fiber fangar brjóstin vel og á meðan skrautbandið liggur svo fallega á bringunni - það er bæði hægt að stilla það eða taka það alveg af. Hann hefur breiða styrkta hlýra, fóðraðar krækjur/festingar og er breiður yfir bakið, sem gerir þennan að alveg ofboðslega þægilegan haldara... og auðvitað gullfallegan. Ljósi liturinn er sígildur, passar undir allskonar fatnað.
ATH Krisline hefur sitt eigið stærðar sýstem. Við mælum með að taka 2 skálum stærra en þú ert vön. Alltaf hægt að hafa samband ef þú vilt ráðleggingar.
- ófóðraður brjóstahaldari
- með spöngum
- góður hliðarstuðningur
- stuðningur minni brjósta
- breiðir stillanlegir hlýrar
- breiður yfir bak
- skrautband á bringu sem er hægt að fjarlægja
- Krisline stærðir